Þegar námskeið eru stofnuð, er hægt að hengja á þau afsláttar prófíla. Við kaup á þeim verða til afsláttar kúponar sem eru sjálfvirkt virkjaðir við næstu kaup hjá notendum.
Dæmi um hvernig þetta lítur út hjá notanda í vefverslun
Stofnun á afsláttar prófíl
Til að stofna afsláttarprófíl þá smellir þú á greiðslur og ferð í annað lengst til hægri og þar í afsláttarprófíll. Sjá mynd.
Næst er farið í stofna og valið bæta við afsláttarprófíl. Þið sjáið einnig lista yfir þá afslætti sem hafa verið stofnaðir nú þegar þarna inni.
Name / Nafn
Nafn afsláttar prófíls. Þetta nafn er sýnilegt notanda við kaup á þjónustu. Dæmi um nafn er “Systkinaafsláttur” og “Fjölgreinaafsláttur”.
Description / Lýsing
Stutt lýsing á afsláttar prófíl. ATH þetta er ekki sýnilegt notanda.
Type / Tegund
Hægt er að velja um 3 mismunandi tegundir afslátta.
Systkina / Sibling: Systkin fá kúpon sem þau geta notað við kaup. Notast er við fjölskyldutengsl í þjóðskrá.
Fjölskyldu / Family: Öll fjölskyldan fær kúpon sem þau geta notað við kaup. Notast er við fjölskyldutengsl í þjóðskrá. Ath, einstaklingar 18 ára og eldri hafa sér fjölskyldunúmer og fá ekki kúpon þó þau búi að sama heimili.
Einstaklings / Personal: Sami einstaklingur fær kúpon.
Limitation / Takmörkun
Hægt er að takmarka notkun kúpona við kaup. Tegundir takmarkana eru:
Engin / None: Kúpon virkar á öllum námskeiðum / iðkendagjöldum.
Innan deildar / Same Sport: Kúpon virkar eingöngu innan sömu deildar og námskeið sem var keypt.
Fjöldeilda / Multi Sport: Kúpon virkar í öðrum deildum en þeirri sem námskeiðið var keypt í.
Fjölnámskeiða / Multi Services: Kúpon virkar í öðrum námskeiðum en því sem keypt var.
Value / Upphæð
Afsláttur í prósentum.
Combine Amounts of Purchases / Vegið meðaltal kaupa
Ef hakað, þá er afsláttur reiknaður sem vegið meðaltal af síðustu og núverandi kaupum. Með þessu þá skiptir ekki máli hvort viðkomandi kaupi dýrara eða ódýrara námskeiðið fyrst.
Ef ekki hakað, þá er afsláttur eingöngu reiknaður af því námskeiði sem notandinn er að kaupa.
Coupons issued from / Útgáfa kúpona hefst
Dagsetning hvenær kerfið byrjar á að stofna kúpona við kaup.
Coupons issued end / Útgáfa kúpona endar
Hvenær kerfið hættir að stofna kúpona við kaup
Coupons expire / Líftími kúpona
Í hvað marga daga það er hægt að nota kúpon áður en hann rennur út. Ath, líftími getur ekki verið lengri en gildistími (sjá að neðan) og er sjálfvirkt stilltur með t.t þess þegar kúpon er búinn til. Sem dæmi, ef kúpon er útgefinn daginn fyrir gildistíma þá er líftíminn bara 1 dagur þó hann sé skilgreindur sem 90 dagar.
Gildistími
Hvenær allir kúponar sem stofnaðir hafa verið renna út.
Dæmi um systkinaafsláttar prófíl
Fyrsta barn greiðir fullt verð, en systkin fá 10% afslátt.
Dæmi um Fjölgreina afslátt
Hér greiðir barn fullt gjald við fyrstu kaup, en fær 15% afslátt af æfingagjöldum við greiðslu æfingagjalda í annari deild.
Dæmi um Fjölnámskeiða afslátt
Hér greiðir barn fullt gjald fyrir fyrsta námskeið en fær 30% afslátt af öðru námskeiði.
Virkjun afsláttar í námskeiðum
Til að virkja afslætti þarf að hengja þá á námskeið. Það er gert með því að fara í námskeiðin og velja afsláttar prófíl, einn eða fleiri.
Handvirk úthlutun á afslætti / kúpon á einstakling (sem hann getur notað síðar)
Hægt er að úthluta handvirkt kúpon á iðkanda. Það er gert með því að smella á greiðslur, velja annað í hægra horninu og þar smellt á afsláttarprófill. Síðan er smellt á stofna og velja “Assign Coupon to user”/stofna kúpon á meðlim.
Velja iðkanda sem á að fá kúpon
Smella á “Assign Coupon”
Þegar notandi fer síðan í vefverslun lítur þetta svona út
Forskrá iðkanda með afslátt
Sjá grein um forskráning iðkanda...