Nú er hægt að stofna marga greiðsluseðla í einu með nokkrum smellum.
Það er hægt að fara tvær leiðir.
Leið nr 1 er ef það á að senda greiðsluseðla á alla ógreidda í einhverju einu námskeiði.
Leið nr 2 er að smella á greiðslur flipann í vinstri stikunni og sía út það sem er ógreitt þar undir.
Leið 1
1. Smellt er á þjónustyfirlit í vinstri stikunni og svo finnið námskeiðið. Þegar þið finnið námskeiðið þá smellið þið á rauðu töluna undir ógreitt.
Í þessu dæmi er það námskeiðið discount test og ég sé að það eru 4 ógreiddir og smelli því á töluna 4.
2. Nú opnast gluggi þar sem ég sé þessa fjóra einstaklinga sem eiga eftir að greiða. Ég smelli á hringinn við hliðina á nafninu þeirra og fer í breyta og vel stofna greiðsluseðil.
3. Næst opnast gluggi þar sem þið veljið:
- Auðkenni greiðsluseðils
- Gjalddagi/Eindagi
- Number of payments. Ef einn er valinn þá er sendur einn greiðsluseðill en ef valið er t.d þrír þá eru sendir þrír greiðsluseðlar
- Greiðandi - Hérna er valinn greiðandi. Það er alltaf hægt að stimpla inn kennitölu greiðanda.
Þegar búið er að fylla allt rétt út er smellt á Stofna.
Leið 2
1. Smellt er á "greiðslur" flipann í vinstri stikunni. Svo er valið reikningar, rétt tímabil og svo smellt á síur.
2. Þegar smellt er á síur þá opnast þessi valmynd. Þar er hægt að leita niðrá deild, þjónustu og stöðu. Mikilvægt er að velja staða: ógreitt.S vo er smellt á leita.
3. Nú opnast gluggi þar sem allir ógreiddir birtast í námskeiðinu discount test. Til að senda á greiðsluseðla alla í einu er smellt á hringinn og valið breyta og stofna greiðsluseðil.
4. Næst opnast gluggi þar sem þið veljið:
- Auðkenni greiðsluseðils
- Gjalddagi/Eindagi
- Number of payments. Ef einn er valinn þá er sendur einn greiðsluseðill en ef valið er t.d þrír þá eru sendir þrír greiðsluseðlar
- Greiðandi - Hérna er valinn greiðandi. Það er alltaf hægt að stimpla inn kennitölu greiðanda.
Þegar allt er útfyllt er ýtt á stofna.