Það eru tvær leiðir til að breyta kortaupplýsingum
Í appinu
Lengst niðri til hægri sjáið þið 3 láréttar línur og smellið á þær. Á "Mitt svæði" er hægt að skoða stillingar, áskriftir, kvittanir og það sem er ógreitt. Smellið á ógreitt og finnið reikninginn þar sem þið viljið uppfæra kortaupplýsingar. Þar fyllið þið út nýju kortaupplýsingarnar og smellið á kaupa. Við þetta uppfærist nýja kortið einnig á aðra reikninga sem þið eruð með.

Í vafra(tölvu)
Farið í vafra og inn á síðuna sem þið keyptuð námskeiðið/æfingagjöldin. www.sportabler.com/shop/"nafnfelags"
Skráið ykkur inn efst í hægra horninu. Þegar búið er að skrá sig inn er hægt að smella á reikningar og áskriftir efst í hægra horninu.
Til að breyta kortaupplýsingum þá smellið þið á reikningar og veljið "greiða" og breytið þar kortaupplýsingunum og smellið á kaup. Hafa ber í huga að nýja kortauppfærslan uppfærist einnig á aðra útistandandi reikninga.