Til að stofna endurnýjanlega áskrift þá er smellt á: 
þjónustuyfirlit -> Stofna -> Stofna áskriftarþjónustu 



Í kjölfarið opnast þessi gluggi


Þegar búið er að fylla allt út þá þarf að stofna Val:

Eitt val: Ef hakað er í eitt val getur kaupandinn aðeins valið einn kost af þessum þremur. Ef ekki er hakað í eitt val getur hann valið alla kostina.


Nafn: Velja nafn sem birtist í vefverslun

Upplýsingar: Hérna er sett inn lýsing sem birtist kaupendum.

Tegund: Tegundin á þjónustunni, t.d. námskeið eða félagsgjöld

Flokkur: Mikilvægt er að velja réttan flokk

Tegund starfsemi: Ef ekkert á við þá velja "other"

Viðtökureikningar: Passa að setja inn réttan reikning hérna.

Opið (Sýnilegt í vefverslun): Ef valið er ,,Opið'' þá þýðir það að þjónustan er sýnileg í vefverslun. Hægt er að breyta þessu eftir að námskeið er stofnað.

Reikningur viðtakanda: Passa að réttur reikningur sé valinn. Þið sjáið lista af viðtökureikningum ef þið smellið á flokkar og veljið annað lengst til hægri og smellið þar á viðtökureikningar.



(Afslættir: Virka ekki fyrir áskriftargjöld)


Subscriptions options


Nafn: Í þessu dæmi er selt gull, silfur og brons. Þetta birtist í vefverslun sem kostir til að kaupa.


Áskriftartímabil:


Dæmi 1: Ef þú vilt að áskriftin endurnýjist í hverju mánuði þá velur þú 1 og stillir á mánuðir í áskriftartímabilinu. Ef þessi kostur er valinn þá endurnýjast áskriftin mánaðarlega. Svo er hægt að leika sér með þessar tölur eftir því sem hentar ykkur best


Dæmi 2: Ef þú vilt að áskriftin endurnýjist á 4 vikna fresti þá velur þú 4 og smellir á vikur í áskriftartímabil. Ef þessi kostur er valinn þá endurnýjast áskrifting á 4 vikna fresti. Svo er hægt að leika sér með þessar tölur ef því sem hentar ykkur best.


Fjöldi endurnýjana: Þýðir hvað þú vilt að áskriftin endurnýjist lengi í þessu dæmi er það 12 mánuðir. Það þýðir að áskriftin dettur út eftir 12 mánuði.


Verð: Verð sett inn


Virkja á:


Tveir kostir

 

NR 1: áskriftin tekur í gildi um leið og viðkomandi aðili gengur frá fyrstu greiðslu.


NR 2: Áskriftin tekur í gildi mánuðinn eftir að viðkomandi aðili hefur gengið frá greiðslu.


Skráning opnar og lokar: Þarna er sett inn hvenær skráning opnar og hvenær hún lokar.


Fjöldatakmörkun: Ef það takmarkanir á framboði þá veljið þið fjöldatakmörkun og stimplið inn hvað eru mörg laus pláss


Biðlisti: Hægt er að setja á biðlista.


Staða: Opið þýðir að þetta sé sýnilegt í vefverslun en lokað þýðir að enginn sér þetta nema þið í stjórnendakerfinu.


Undirhópar: Gott er að velja create new group og velja undirhópinn gull fyrir gull og silfur fyrir silfur o.sfrv. 




Svona lítur þetta út í vefversluninni:



Sýnidæmi 2


Á myndinni fyrir neðan má sjá hvernig hvernig týpiskar áskriftir líta út hjá líkamsræktarstöð:


Svona lítur þetta út í vefverslun: