Framkvæma bakfærslu vegna Abler Pay (t.d mótgjöld, pizzakvöld og rútuferðir)

Þjálfari, gjaldkeri eða stjórnandi (sá sem hefur greiðsluréttindi) getur framkvæmt endurgreiðslur. Neðangreint er vídeó lýsir því bæði í tölvu og síma. 


Í tölvu:





Í síma/appi:





Iðkandi/foreldri óskar eftir bakfærslu

Ef iðkandi/foreldri er búinn að greiða fyrir viðburð, en er síðan t.d. veikur og getur ekki mætt, þá getur foreldri breytt úr “mæti” í "mæti ekki", þá kemur í listanum bæði í appinu og á netinu “bakfærslu óskað”. Þjálfari/gjaldkeri getur þá staðfest þetta og endurgreitt. 

Endurgreiðslan fer ekki sjálfkrafa af stað, ávallt þarf aðili með greiðsluréttindi að staðfesta endurgreiðslubeiðnina. Skoðið video hér að ofan til að sjá hvar þið finnið þessar upplýsingar.


Hvernig er fjárflæðið við endurgreiðslu/bakfærslu í Shop og AblerPay

Þegar bakfært er í Sportabler þá fer staða félagsins hjá færsluhirði (kortaþjónustunni) í mínus, greiðslan berst inn á kort greiðenda og tekur yfirleitt ekki meira en 2 virka daga að berast (getur liðið allt að 10 dagar en það fer eftir tegund korts). 


Dæmi um fjárflæði við endurgreiðslu:

Iðkandi/foreldri greiðir 5.000kr.

Færslugjöld eru t.d. 99kr + 1% per færslu (færslugjöld renna til færsluhirðis, visa/mastercard og Sportabler). 


  1. Foreldri greiðir 5.000kr fyrir viðburð, þar af eru færslugjöld 149kr. (99kr + 1% af upphæð). 

  2. Inn á reikning félags millifærist 4.851 

  3. Bakfært er 5.000kr (upphæð með færslugjöldum)

  4. Staða hjá félagi fer í -5.000kr. sem er þá leiðrétt (nettast út) næst þegar einhver greiðir inn á reikning félagsins. Það má því segja að þangað til að næsti aðili greiðir er KORTA (færsluhirðirinn) að lána félaginu fyrir þessum 5.000kr, því ekki er hægt að taka beint fjárhæðir útaf reikning félagsins. Við smærri endurgreiðslur er þetta í lagi, en þegar um stórar endurgreiðlsur er að ræða þá er farið fram á neðangreint verklag (stórar endurgreiðslur/bakfærslur). 



Til frekari upplýsinga: Ekki er hægt að endurgreiða færslugjöldin, enda búið að veita þá þjónustu. En ekki er tekið gjald fyrir endurgreiðslu/bakfærslu.